Vargsgól, vetrarsól Vesturland í kringum jól Kolsvart, hjarnið hart himinhvolfið lýsir okkur stjörnubjart Köld lönd, klakabönd klífur fjallið loppin hönd Snöggt hlaer snarpur blaer Það snjóar, það snjóar, það snjóar
Við hnjúk, vaðmálsdúk vefur að sér, dulan mjúk hlýtt skinn, hlífir kinn Hamast við að komast yfir fjallgarðinn Átak, bogið bak býr sig undir vopnaskak Snöggt hlaer snarpur blaer Það snjóar, það snjóar, það snjóar
Gengur yfir gamalt hraun Gista skúta þar á laun þeirra mikil þrek- er raun útilegumenn Horfa eftir henni burt héla frystir visna jurt Eftir henni aldrei spurt Það snjóar, það snjóar
Snjóar óðum á snjáðan veg snögg er Þórunn og vörpuleg Snjóar, hvernig sem snýrðu þér snarlega yfir fljótið fer Snjóar nú yfir sneiðinginn sneisafullur er dalurinn Snjóar, þótt komi snemma vor snörla vitin og vella hor Snjóar ákaft Snaefellsnes snarpur vindur um andlit blés Snjóar, þar sem við snertum Hel snjakahvítt hennar hugarþel Snjóar og hvergi snarkar glóð snauðir deyja er frystir blóð
Gömul kona, grá og hokin gengur ein í kafaldsbyl Hárið sýlt og hettan fokin hún kom níður Stekkjargil Gengur sér til gagns og hita gamlir faetur virðast strita Ferðir hennar faestir vita
Það snjóar!
Hennar siður, Friggjarfriður fótaskriður rennir niður Brakar viður, stafur styður Stíginn ryður, gaefusmiður Þórunn biður Lofn um lið